Öldur
sem í tímans rás hafa velkst um
borist á land og skolast út aftur
handan sjóndeildarhrings
eilífðar


bárur
sem sýna ummerki aldanna
breytingar, baráttur, bænir
allt skrifað í sandinn
sokkið

kalt
frosið í hvítan ísinn
andlit með bláar varir og djúp augu
starir út í kuldann
tímalaust

bráðnar
í höndum Heljar
endalaus reiði særðrar konu
sem var kastað niður í djúp reiðinnar
blá og marin sleppur úr fangelsinu
frelsuð.
-Sithy-