undir hlyn
í skuggavéi
ber hind
sólstaf

er röðull
hnígur
nótt
dregin yfir

augu
ljós og skuggi
titra fingur
- andvana

hindin rís
álút
eltir nóttina
úr skóginum

og bíður dags.




(til H.)