Ég hef gengið
í stórhríð og myrkri
fáklæddur og kaldur
villtur
með ekkert ljós
vindurinn lemur
frostið bítur
dagarnir líða

vita öll af mér
vissu hverju ég klæddist
fylgdust með
þegar ég lagði af stað

dagarnir líða
vindurinn lemur
frostið bítur

laminn
kaldur
villtur
einn

hvar voru þið
þegar ég lagðist í snjóinn
og gat ekki haldið áfram
hvar voru þið…