“Fucking shit!”
sagði unglingurinn við sjálfan sig
þegar hann missteig sig á sleipri götunni.
Gömul konan heyrði til hans
og táraðist
yfir glataðri æsku nútímans…

“Náði ykkur!”
sagði smástrákurinn við hina krakkana
þegar hann beindi platbyssunni að þeim.
Gömul konan heyrði til hans
og táraðist
yfir krúttlegri æsku nútímans…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.