ég hrópaði
fögrum orðum
upp til fjallanna
og vonaði
að þau myndu
bergmála alla leið
til þín
en þau týndust í þokunni

ég sendi þröst
með kveðju
eins og jónas forðum
og vonaði
að hann næði
yfir hafið og heim
til þín
en hann dó á miðri leið

nú hvísla ég
ástarorðum
í vindinn
og bið um
að þau berist
ljúft að eyrum þér
og vona
að þau fari ekki út um hitt