hmmm… hef aldrei skrifað hérna inná… hvað þá birt neitt sem ég hef samið áður.

Ég var að fara í gegnum gamalt drasl og fann eitt sem ég er ágætlega sáttur við…

Ætla að leyfa ykkur að dæma um hvort það sé gott.

<center>
Opnið augun, því þau eru búin að vera lokuð í öll þessi ár sem þið kallið tilveru ykkar.
Meðvitund okkar leikur okkur grátt,
því við erum svo töpuð í þessum hversdagsleika að við gerum okkur ekki grein fyrir því,
að við göngum í svefni.
Við erum öll í dvala… munum ekki einu sinni eftir því að hafa sofnað.
Við erum öll á biðstofu lífsins, bíðum eftir því að vakna.</cente