ég ligg og er alveg að pissa á mig
ég er nývöknuð og það er engin hjá mér
ég hef ekki hitt þig lengi
en mér er alveg sama
ég nenni þessu ekki lengur
því það dofnar alltaf eitthvað í hjartanu mínu
þegar ég hugsa um þetta allt saman

ég nenni ekki einu sinni að heilsa þér lengur
ég þoli ekki þetta að “vera bara vinir”
ég nenni ekki einu sinni útúr húsi
..en hvað með það?
þú saknar mín ekkert, svo hvað er ég að reyna

ég get samt ekki hugsað svona
þú segir alltaf eitthvað gott
og þú segir alltaf eitthvað sem fær mig til að brosa

en þú hefur samt ekki hugmynd
ég hef aldrei sagt neitt einasta orð um hvernig mér líður
og mun aldrei gera

ég er alveg að pissa á mig
-you´re so pretty when you´re unfaithful to me-