Ég veit
að stúlkukindurnar
sem ganga um beina í
efnislitlum klæðum
á Glaumbar á nóttunni
og selja augafullum Íslendingum skot
eru á prósentum.

Þess vegna vefst fyrir mér
að kenna saklausa barninu mínu
að það skipti engu máli
að vera fallegur
heldur bara að vera góður.