Stríðshrjáðar hetjur lepja gutl
úr þornandi krönum vonarinnar.
Innbyrðis barátta verður að
slæmum vana sem seint hverfur.
Öfgakenndir karlmenn upphefja rödd sína
í hátalarakerfi lýðræðis síns.

En hvert er markmiðið.

Þrátt fyrir að hafa gert samning um
dauð minn við fæðingu,
þá neita ég að skrifa undir fyrir aðra.
“she's the tear that hangs inside my soul forever”. (Buckley).