Ertu sál,
ertu líf,
ertu eitthvað?
Vertu þú,
þig mun ekkert skorta því
sumir trúa,
aðrir horfa og hugsa svo ekki meira um það.
en þú veist.
hundrað andlit horfa á þig
og sjá önnur þúsund
í þér.

Spyrntu þér upp og
við stingum af
upp í geiminn.
Hnoðaðu snjókúlur
úr sólargeislum,
og ég bý til stjörnufestar og
hring úr tunglinu.
Við erum upphafið,
alheimurinn
og endirinn.
There is no sin but stupidity. (Oscar Wilde)