á fyrstu árum ævi minnar
snerust hugsanir mínar
um eftirfarandi setningu:

“Baba, baba… Danni vera aaaaa við bangsa!”

á allra síðustu árum ævi minnar
hafa hugsanir mínar
snúist um eftirfarandi setningar:

“af hverju hefur guð ekki komið niður og bjargað mér!?”
“guð er greinilega dauður og heimurinn fucked up maðkahola!”
“samkvæmt líkindatúlkun Borns táknar tölugildi bylgjufallsins í öðru veldi líkindaþéttleikann fyrir að finna viðkomandi ögn í tilteknu hniti.”
“svartsýni hjarta míns hefur hulið augu mín dökkum dúk eilífðarinnar…”



ég vildi að ég hefði haldið mig við
“Baba, baba… Danni vera aaaaa við bangsa!”



-pardus-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.