Þessi dagur er eins og lífið mitt
það er komið fram yfir hádegi,
en ég hef afrekað ekki neitt.
Í stað þess að vinna, læra
eða taka til í herberginu mínu
ligg ég upp í rúmi
og geri ekki neitt.

Þegar ég loksins dröslast á fætur
er mér litið út um gluggann.
Himinn er grár og jörðin frosin.
Út af súldinni sé ég ekki til fjalla.

Ég skríð því undir sæng
og held áfram að gera ekki neitt
og vonandi tekst mér að gera ekki neitt
þar til ég sofna á ný.