einhvers staðar þarna efst uppi
í ísköldum og ljósbláum skýjum
hefur guð falið sinn lítt notaða
“undo” takka í tölvunni sinni…

ef ég kæmist að honum
myndi ég þurrka út ótrúlega margar
og heimskulegar aðgerðir…

ég myndi þurrka út drykkjuna
reykingar
letina
þunglyndið
minningar
ef tirsjá
rifrildin
kossana
og þann auma mann sem
ég hef nú því miður að geyma…

en ég get aðeins látið mig dreyma

því ég kann ekki fjandans passwordið…



-pardus-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.