Það sem er liðið og kemur aldrei aftur
bíður mín handan sem aldrei verður
og kallar stöðugt á huga minn.

Það sem gæti orðið en er ekki víst
bíður mín handan óvissunar
og gælir við vonir mínar.

Það sem er er bara afstaða mín
fyrir ímyndun þessara tveggja
og merkir ekki neitt.