Þú ert naðra með klofna tungu
Þér kippir sannarlega í kynið
Lygin og sorinn úr þér leka
Ratar aldrei satt orð á munn
Heggur bæði til hægri og vinstri
Blóðslóðin eftir þig liggur


Þú ert naðra með klofna tungu
Sómir þér vel í þínum flokki
En rétt sem lafði McBeth
Blóðið er fast á þínum höndum
Draugarnir, draugarnir úr fortíðinni
Heimta sitt gjald, sitt gjald