Krem alla löngun í líkamanum
kæfi mína sál með hugleiðingum
kefli fyrir vit mín, örmagna.

Held aftur af tilfinningum
hamast við að spara svör
hætti að reyna nokkurn skapaðan hlut.

Álpast um eirðarlaus
ánetjast aumingjaskap
átökin inní mér að deyja út.

Kemst ekki lengra
helvíti bíður
Án þín er ég ekkert.
“she's the tear that hangs inside my soul forever”. (Buckley).