Þú ert sterkur -en mjúkur í senn
Staðfastur -en líka sveigjanlegur
Öruggur -en samt hógvær
Kurteis -en alltaf kúl

Þú ert rómantískur
-en alls ekki væminn
Þú sýnir mér athygli
-en veist að sama skapi hvenær ég vil frið
Þú ert laus við afbrýðisemi
-nema auðvitað þegar hún á við
Þú ert meðvitaður um tilfinningar þínar
-án þess þó að vera upptekinn af þeim

Ég veit að þú vilt mig
-en þú ert spar á að sýna það
Þú ert faðir gáfuðu barnanna minna
-og engra annarra barna

En þú átt þér enga stoð utan draumalands míns.