Notandi: nog_af_moguleikum
Þyngd: 210 kg
Hæð: 191 cm
Háralitur: Rauður

Stutt lýsing:

Ef ég myndi
fara í hárlengingu og hárígræðslu
laseraðgerð á augunum mínum
láta græða sílikon í magavöðva
lita hárið á mér dökkt
fara í ljós þrisvar í viku
kaupa mér BOSS jakkaföt
keyra um á Porche 911
láta minnka á mér nefið
stunda líkamsrækt sex sinnum í viku
fara átta sinnum í lýtaaðgerð og fitusog
og tala með heillandi hreim
yrði ég hugsanlega líkur Johnny Depp að einhverju leyti…

Hefur einhver moldrík kona áhuga þarna úti?

Kveðja

“Möguleikinn”
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.