Hjálp 2

Ég heyri,
Heyri þetta.
Er þetta fótatak…
Eða andardráttur…
Þetta er eitthvað,
Inní mér.

Heyri nú skýrt,
Heyri að þetta er…
Þetta er rödd,
Rödd af konu..




Hún talar,
Talar óskýrt
Heyrist valla,
Samt skýrt.

Þetta er asnalegt,
Að heyra,
Og finna
En ekki sjá
En veit af því.

Bara þetta ,
Er inní mér,
Er að reyna að komast að,
Reyna að komast út…
En hún kemst ekki.

Hún er föst,
Föst inní mér.
Hún byrjar að öskra,
Ég fæ hellu,
En hún hættir ekki.
Hún öskrar,
öskrar svo hátt.
Bergmálar inní mér,
Hræðilegt öskur,
Hún er að öskra á hjálp.


Hvað get ég gert…
Get ég hjálpað ?
Allt í einu hættir hún….
Hún er hætt að öskra,
Hún er hætt að hreyfa sig,
Hún er hætt að ganga,




Hún er hætt að skrifa
Hún er hætt að anda
Hætt öllu….
Eins og hún hefði horfið
Horfið úr mér
eða dáið…

Kannski er það satt
Að lifandi vera
Hafi verið inní mér
En nú er hún farin…
Farin úr mér…
Finn að hana vantar

Gerði ég eitthvað
Drap ég hana…
Af hverju eru engin svör?
Svör við spurningum mínum.

Hver var þessi kona?
Með þessi öskur.
Var hún lifandi ?
Lifandi inní mér.
Að kalla á hjálp,
En enginn kom….
Svo hún gafst upp,
Gafst upp á að öskra.

Mér verður kalt,
Kalt án hennar
Gjörsamlega frosin
Var hún hitinn ?
Hitinn inní mér
Ég byrja að lamast…




Er ég ekkert án hennar
Þótt ég þekkti hana ekkert.
Þá var hún samt
Hluti af mér
Stór hluti…


Ég er að deyja
Deyja út…
Deyja að innan
Hjartað dofið…
Allt að verða svart,
Get ekkert meir,
Öskra bara…
HJÁLP !!!!!
ég er ekki ljóska, ég er bara solldið óheppin þegar ég hugsa :D