Ég gekk inn í forgarð helvítis
óhugnaleg vera rétti mér blað
og skipar mér að byrja á því
ég skil ekki hvað veran meinar
en ég þykist vera að skrifa
veran gengur um þetta herbergi
hún pínir fólk sem skrifar á blöð
veran virðist andskoti glöð
þó að svitalykt flýtur um herbergið
allt í einu stend ég upp
ég geng að borði sem veran stendur við
og rétti henni blaðið
síðan geng ég að dyrum
ég opna dyrnar og geng út
lyktin hverfur og óttinn sverfur
éss ég er búinn með prófið í íslensku! :D