Er ég frjáls
ef að lögreglan handtekur mig
fyrir óspektir á almannafæri,
dansa nakinn niðr'í miðbæ?

Er ég frjáls
ef að eiginkonan mín skilur við mig
út af óspektum á almannafæri,
dansa nakinn niðr'í miðbæ?

Er ég frjáls
ef að ég missi álit vina minna,
foreldra minna,
barna minna
út af óspektum á almannafæri,
dansa nakinn niðr'í miðbæ?

Er ég frjáls
ef ég uppfylli þarfir mínar
með óspektum á almannafæri,
dansa nakinn niðr'í miðbæ
og tapa öllu öðru?
Kíkið endilega á síðuna mína www.folk.is/nixey