Hjálp !!

Reyni að öskra,
En röddin er horfin.
Reyni að hreifa mig,
En ég er máttlaus.
Ég reyni að hverfa,
Allur máttur horfinn.

Ég finn að ég er hrædd,
Hrædd við þetta.
Það ákallar mig,
Ásækir mig,
Get ekkert gert.

Er án sálar,
Án anda,
Án hreyfingar,
Án hjálpar.
Enginn er hér,
Nema ég og……..þetta.

Veit ei hvað það er,
En það er eitthvað.
Því ég er hrædd.
Ég er frosin að innan,
Reyni að hita mig,
En mér er kalt.
Ískalt

Getur enginn hjálpað mér?
Er ég alveg hjálparlaus?
Finn það út að ég er það,
Algjörleg hjálparlaus og ein,
Nema myrkrið og kuldinn.
Sálin að reyna að sleppa,
En hún er frosin,
Gagnfrosin

Reyni að öskra aftur,
Röddin er alveg horfin,
Eins og ég hafi ekki lært að tala.
Reyni að hlaupa í burtu,
En ég get ómögulega hreyft mig.
En frá hverju ætti ég að hlaupa?
Ég veit ekki hvað þetta er,
Kannski er þetta bara óútskýranlegt.

Enginn veit hvernig,
Á að komast hingað,
Komast burt héðan.
Hvernig kom ég?
Af hverju er ég hér?
Veit einhver af mér?
Allar þessar spurningar,
Án svara,
Án sannana,
Án alls.

Ég veit ekkert ,
Ekkert meira en þú.
Ég er hér,
En hvar ert þú?
Þetta er spurning án svars.

Af hverju er ekki einhver,
Sem veit allt.
Getur hann þá kannski,
Sagt mér hvað ég hef orðið,
Hvar ég er,
Hver er þetta,
Þessi hlutur,
Kannski ekki hlutur,
Bara eitthvað,

Ég er að leita,
Að manninum með svörin,
Kannski bara konu,
Þá get ég fyst,
Reynt að komast héðan.
Ef ég veit hvar ég er,
En það veit ég ekki,

Ég get ekki skrifað,
Penninn að dofna.
Hendin að lamast.
Get ekkert lengur,
Verð að kveðja,
Segi bara………
HJÁLP !!!!!!!!!!!!!


svandis
ég er ekki ljóska, ég er bara solldið óheppin þegar ég hugsa :D