Ég samdi þetta ljóð eftir að amma mín dó……..dáldið síðan en mig langaði að setja það hérna :)


Ég geng á lífsins veg og hrasa ei
ef þú ert til staðar
Ég leit alltaf upp til þín en nú þarf ég að líta hærra,
því þú fórst frá mér

Ég veit samt ennþá af þér,
elsku óma mín
Þú hjálpar mér þó ég sjái þig ekki
og ef ég þarf á þér að halda
ertu alltaf til staðar í mínu hjarta

Ég vildi samt geta heyrt þig tala við mig
Bara að ég fengi að heyra hlátur þinn,
bara í eitt sinn
Brosið þitt blíða ég sé hvert kvöld
og er ég vakna er það ennþá eins

Sárt er að hugsa til þess að þig ég sé ekki aftur,
sama hvað ég bið
Ég veit þú vakir yfir mér,
sama hvert ég fer


Ég sakna þín, elsku óma mín
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"