Líður
eins og ég sé á kafi
og allt er dimmt.
Ég finn ekki leiðina upp
og veit ekki hvert ég syndi.
Ég finn þig nálgast
en svo missi ég þig.
Ég er týnd, finn ekki leiðina.

Líður
eins og ég sé að synda í ranga átt
en samtímis rétta.
Stundum hætti ég að synda
en hugsa ekki skýrt.
Ég vil ekki gefast upp
og vil ekki halda áfram.
Ég er týnd, finn ekki leiðina.


Ég er týnd í hugsunum mínum.