Hvernig væri að allir
englar alheimsins
(já þú líka!)
flygju nú saman
í oddaflugi

í háloftunum
á vængjum orðanna
með mætti frjóleikans

við gætum svo lent á
mjúkum blaðsíðum
fjarlægra plánetna

gefin út á prenti
af ljósstaf allsherjarguðsins,
sem myndi heiðra minningu okkar
í festingu stjarnanna.