Í fyrsta ljósi napurrar nætur,
nálgast myrkrið mig.
Geng í gegnum langa skugga
og gref svo upp þig.

Kveiktu í…

Í myrkrinu ég miklast
og maran rís.
Ragur ég reika eins og
rangsnúin flís.

Kveiktu í…

Orðum er gefinn gaumur
á grafarbakka.
Orð sem enginn heyrði,
ekkert að þakka.

Ég kveiki í…

Hvar er svo heimurinn,
hálfur í myrkri falinn?
Í eilífðinni endalausu
ekkert kemur í staðinn.