ég er hrúgald
og ég hnipra mig saman
undir rigningarhimni

hárið
óhreinar lufsur
sem leka ofaní tárvot augun
grátbólgin

opin sár mín blæða ekki
því rigningin
skolar blóðinu burt

og hún deyfir

en kuldinn nístir
og ennþá skelf ég
svöng
köld
&
sár

og veit
að svona líður mér best