Þegar ég er með þér
finnst mér stundum eins og mér sé alltaf kalt á tánum
það er sama hve þykka sokka ég fer í
kuldinn nístir í gegnum óklipptar táneglur mínar

og þá verður mér hugsað til þess hvað ég skammast mín fyrir táneglurnar mínar og vona að þú munir ekki neyða mig til að sýna þér þær.

Mér finnst þú erfið.