Ljáðu ljóðum vængi orða
láttu fljúga hátt.
Límdu í línu orðaforða
skáldi gefðu mátt.

Láttu fljúga um land og fjöll
láttu berast um víðan völl.
Láttu eigi sannleikann ljúga
leyfðu frelsi orða að fljúga.

Lát þú frelsi orða ferðast
um fjöll og firnindi í landi vors.
Í skini og skúrum lát uppveðrast
ljáðu ljóðum vængi, orða þors.

Ljáðu orðum vængi ljóða
leyfðu hljóðum orða að hljóma.
Þegar að, dimmir myrkur
þá ljóðahljóð er styrkur.
Láttu hljómana óma
með ljóðahljóða sóma.

Þetta er orðin orðaglíma
á þetta blað ég er búinn að líma. ´
Nú er ég farinn aftur að ríma
þetta er orðin ljóðahljóða orðaglíma.