SVART

Hvert einasta hljóð
sem kemur frá mér
er ekki lengur
tileinkað þér.

Hver einasta hreyfing
ekki þaulhugsuð
þér til dýrðar
enginn söknuður.

Ormurinn skríður
innra með mér
samviskan bíður
viljandi.

Hugsa um þig
og veit ekki
hvort ég sé að deyja
lifandi.