Eftir leik minn í snjónum,
þetta stjörnubjarta vetrarkvöld,
sá ég silfruð spor snjóenglanna
svífa hátt upp í litríkan himininn.
Mig langaði að fylgja þeim eftir og
dansa með þeim miðnæturvalsinn,
í hofi meyjanna, berfætt,
í gullskóm sólarinnar.