Vað ekki í villu og svíma
í válogum liðinna tíma
en horfðu upp í himinblámann
og hugsaðu fram um veg
trúðu á mátt þinn og meginn
er mun þína gæfu skapa
því Guð býr í brjósti þínu
og býðst til að leiða þig.