Auðmýktin -
fegursta blómstrið,
sem spratt í Paradís,
og hið fyrsta,
sem visnaði.
Síðan hefur það
sjaldan
sprottið á jörðinni.
Það er svo veikt
og fíngert
að það visnar
á sömu stundu
og það lítur
á sjálft sig.