Góðann daginn mætu menn
mikið stærri tölvu vantar.
Gamla mín hún gengur enn
gallað forrit slæmir kantar.
Gamall rofnar gjörfinn senn
góðann betri annan pantar.

Tölvuna ræsti tók síðan hlé
tugtugu mínútur í það mesta.
Hlyntur er ekki háði og spé
harðdiska óttaðist klessta.
Víða höndlandi valkosti sé.
valið er ætíð það besta.

Sjöhundruð og heldur betur
hafa verð ég móðurborðið.
Finnist maður er gefið getur
gamlan hlut fær þakkarorðið.
Vinnslugleðina talvan tekur
takist að bæta vírusmorðið.