Í gegnum hið kalda
kyrra veraldarhaf
rennur hlýr
Golfstraumurinn
frá miðbaug jarðar
til
norðurheimskauts.

Spurðu vísindin
hvernig það má verða
að straumur
með volgu vatni
geti runnið eins
og milli tveggja
fljótsbakka
úr myrku
köldu
kyrru vatni.

Þau geta ekki
skýrt það.

Á sama hátt
mætum vér
í heimi
náttúruaflanna
sem líka
eru
komin frá Guði.

Þeim Guði sem er kærleikur…

Og vér
leyfum heitum
lifandi
Golfstraumi
kærleika hans
að ná
og hrífa oss
með sér.