Í nótt er koddinn þinn kaldur
og kolsvartir skuggarnir dansa.
Myndum á veggina varpa.
Minningar, minjar og fleira.

Sameinuð sál okkar beggja,
sefur þó fjöll skilji á milli.
Hugsa um ilm þinn og yndi.
Ástin mín eina og sanna.

Nóttin er köld einsog koddinn
og kolsvartir skuggarnir dansa.
Regnið á rúðunni bylur.
Við finnumst í faðmi hvors annrs.
It’s not only the car your driving, It’s also the size of the arm hanging out of the window