Eitursnjall er snillings hugur
sniðuga hugmynd ýmsir fengu.
Sanna heimi að dáð og dugur
dælir í þá er fremstir gengu.
með févana sjóði og aurasugur
sveltandi öryrkjum yfir héngu.

Afkoma sjúklings er tekjutengd
til makans er skerðingin metinn.
Sjúkir nota lækna í bráð og lengd
af léttum diskum matur etinn.
Milljóna þörfin af ríkinu rengd
raunar hver króna umsetinn.

Aldnir og öryrkjar sárlega kvarta
alþingi rói þá siðblindu og sefi.
Afstaða þingsins verri en varta
er vex með hárum fremst á nefi.
Hækkunum ætti hópurinn skarta
og horfa fram að næsta skrefi.

Allra hugur sinn eigin hagur
eitthvað ég hagnast á þessu.
Hér er bundinn flokkabragur
bíttað er enn á stól og sessu.
Skaffaður lyga skreytnidagur
skynsemin er keyrð í klessu.