hún gróf holu
í garðinum sínum

mætti kannski kalla það tilfinningagröf

bar tárin og hláturinn að gröfinni
og sturtaði ofaní ásamt

angist biturð alsælu
þreytu fullnægingu hryggð
tómleika kæti meðvirkni
leiða tilhlökkun depurð
kvíða ofbeldishneigð mæðu
depurð sólskinsskapi ofvirkni

og öllu hinu sem hún
hafði fundið fyrir

hún fór með bænir og
kvaddi tilfinningalífið
með doða í hjarta

gekk svo inn í húsið
skar úr sér hjartað
og tróð því ofan í frystikistu