Léttvægt hversdagsatriði
í augum þínum
-þú sást ekki-

hægur andvari
sem smaug framhjá eyrum þínum
-þú heyrðir ekki-

fíngerður sandur
sem rann úr lófa þínum
-þú skildir ekki-

mín eina ósk
áður en ég fór

(ég bað þig um að setja gosið inn í ísskáp)
Ha-gka-up