hiti
raki
og
rauður himinn

hinstu geislarnir
í hafinu drukkna

hann
og
hún

raða í sig:
ravioli
tortellini
og
hvítlauksbrauði
böðuðu í ólífuolíu

maka á sig:
sólarvörn
og
hvort öðru

sólþurrkaðir tómatar
og
sólbrenndir prímatar

saman
við sólarlag