Þú ert það fallegasta.
Ég vakna og heyri í þér.
Ekki hátt, bara nóg til að vita
að þetta er ekki búið.
Nóg til að vita
að þetta er ekki draumur.

Að velta mér við á hverjum morgni
og reka nefbroddinn beint í þinn,
vonast eftir smá viðbrögðum;
kannski opnast augun.

Þú þoldir ekki þegar ég gerði þetta
í fyrstu skiptin.
Ekkert gagnvart mér, þér brá bara svo.
Bara leiðin hans Tígra að góðum degi.