Einhversstaðar inni í mér
býrð Þú ennþá
Einhversstaðar á kafi í mér
búa ennþá frumur
sem taka kipp
þegar Þú gengur framhjá
Einhversstaðar á botni heilabús míns
býr ennþá löngun
til að kasta mér í fang þitt
rétt eins og við værum persónur
í væminni ástarsögu.

En rétt hjá þeirri löngun
býr óttinn um að þú
viljir ekki leyfa mér
að eyðileggja þig lengur.