ok ég þarf að fá komment á þetta. ég hef verið að dunda mér við að semja íslenskan texta við lag með Radiohead sem heitir ‘Thinking about you’ og mér langar að vita hvað ykkur finnst.

Ég hugsa um þig, um augun þín blá
um fallegt ljóst hár, fagurt gert nef
en ég á engan séns því þú ert of góð
fyrir mig

Ég hugsa um þig, ég get ekki hvílst
á ég að elska þig taka sénsinn í þig
en ég spila með mig, hvað get ég gert
þegar hann er miklu betr' en ég

viðlag.
Allt sem þú þarft, færðu hjá mér
alla mína ást og miklu meira með
sendi ég þér, elskan

ok ég er ekki búinn með meira en hvað finnst ykkur….ætti ég að halda áfram með þetta eða ætti ég bara að henda þessu í ruslið og láta svona væmið shit eiga sig komment plís