erum án
yfirlýsinga
um morgundaginn
erum án
játninga
um gærdaginn

erum meyr
í hjartanu án yfirþyrmandi
tilfinninga
(-semi)

allt er svo mjúkt: pastað
rauðvínið kossarnir
kaffið

veit ekki hvernig þú
grætur en veit upp á
hár hvernig
þú færð fullnægingu

bara erum og það er
svo gott