Líkt og kynköld rotta
trítlar skynsemin um í galtómum huganum.
Með tilgangsleysið að vopni
breytir hún litum í tölustafi
og rúðustrikar landslagið.

Þú og þín fjandans sjálfsstjórn…
flæktur í sterílum rökum
og heilbrigðu hugarfari.
Og ég…gersneydd viti,
með hjartað að vopni
lita gildrur mínar í felulitum
og bíð.
There is no sin but stupidity. (Oscar Wilde)