ég yrki

alltaf með penna því
ljóð
og lyklaborð

eiga alls ekki
saman
ég þarf

blaðið og pennann og blekið
til þess að grípa

orðin sem staldra
svo stutt

við