Hatrið upp í mér byggist
reyni það jafnóðum brjóta
á meðan grunur minn tryggist
þér ég mig leyfi ekki að skjóta

…

trausti mínu hélt ég aftur
óttaðist þú mér þetta gerðir
fyrir þér augunum lygni aftur
hjartað sig saman herðir

…

þinn er missirinn og sorgin
mín er hamingjan og sigurinn
úti bíður þér glaðvær borgin
mín bíður allur lífs auðurinn

…

vild ég væri ekki svo bitur
eftir allt átti þetta ekki að vera
vona þú finnur þar sem þú situr
hvað þú í lífinu vilt með þig gera