Ég horfi eftir þér í myrkrið
þori ekkert við því að segja
vil mig ekki á þér brenna
fengið á því áður að kenna



Þarf meira af þér til að lifa
hryn annars niður að skrifa
um þögnina sem í mér glymur
hvert hjartslag óskarndi dynur



Þú varst ekki hjá mér í nótt
mér vænt um þig hafði þótt
hjartað í baklás fer skjótt
veit þú gerðir eitthvað ljótt



Erfit á með þig að skilja
þig frá mér ert að hylja
betur á mig kominn einn
þú í hjarta mér ert sem steinn