Að kveldi grafðu gremju og sút
gumi vertu klár að morgni
Að morgni dags reistu markið hátt
brostu kátur og gakk á tindinn

Þú kannt að detta um þúfur
og þyrsta þegar hungrið sverfir að
mundu þá alla þína sigra
á föllnum fjandmönnum