Stattu við brún hyldýpis
og öskraðu.
Sá þögli velkist um,
tilfinnanlega allslaus,
allsgáður, aldofinn.
Limlestum frostið,
troðum það niður í svaðið.
Ég sé blóð hins alvitra,
það drýpur niður hálsinn á þér;
drekkum.
Albúin; við erum allsnakin.
Öskraðu á alheiminn
…allan.
There is no sin but stupidity. (Oscar Wilde)